Fótbolti

Ronaldo vinsælastur á Facebook

Ronaldo er vinsæll og veit af því.
Ronaldo er vinsæll og veit af því.
Portúgalinn Cristiano Ronaldo er vinsælasti knattspyrnumaðurinn á Facebook. Ronaldo er búinn að brjóta 50 milljóna múrinn í vinsældum á Facebook en það hefur enginn annar knattspyrnumaður gert. Aðeins tónlistarmenn hafa náð þeim árangri.

Það munar tíu milljón aðdáendum á Ronaldo og Lionel Messi en þeir tveir eru bestu leikmenn heims.

David Beckham kemur svo í þriðja sæti með 21 milljón aðdáenda og Brasilíumaðurinn Kaká er í fjórða sæti yfir vinsælustu íþróttamennina á Facebook.

Vinsælastu íþróttamennirnir á Facebook:

1. Cristiano Ronaldo (knattspyrna)

2. Lionel Messi (knattspyrna)

3. David Beckham (knattspyrna)

4. Kaká (knattspyrna)

5. LeBron James (körfubolti)

6. Michael Jordan (körfubolti)

7. Andres Iniesta (knattspyrna)

8. Dwyane Wade (körfubolti)

9. Sachin Tendulkar (krikket)

10. John Cena (wrestling)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×