Fótbolti

Þægilegt hjá Real Madrid

Nordic Photos / Getty Images
Real Madrid komst aftur á sigurbraut í spænsku úrvalsdeildinni með 2-0 sigri á Celta Vigo. Gonzalo Higuain og Cristiano Ronaldo skoruðu mörk Madrídinga.

Celta Vigo er nýliði í spænsku úrvalsdeildinni og því var Ronaldo að spila í fyrsta sinn gegn liðinu. Hann hafði fyrir leikinn í dag skorað gegn öllum þeim liðum sem hann hefur mætt í deildinni og breyttist það því ekki í dag.

Með sigrinum komst Real í fjórtán stig og er liðið nú í fjórða sæti, fimm stigum á eftir toppliðum Barcelona og Atletico Madríd. Börsungar mæta Deportivo klukkan 20.00 í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×