Fótbolti

Vilanova: Andstæðingar okkar farnir að læra á okkur

Tito Vilanova, þjálfari Barcelona, hefur byrjað vel með liðið en viðurkennir að það sé orðið erfiðara fyrir liðið að vinna leiki enda séu andstæðingarnir orðnir betri í að finna lausnir á leik Barcelona-liðsins.

Barcelona er farið að fá fleiri mörk á sig en áður en það hefur sloppið hingað til í vetur.

"Það er ekkert auðvelt. Stundum vanmetum við andstæðinginn en við megum það ekki. Við erum liðið sem allir vinna vilja og það verður sífellt erfiðara að vinna því hin liðin vita vel hvernig við spilum," sagði Vilanova.

Barcelona spilar á útivelli gegn Benfica í Meistaradeildinni í kvöld og svo bíður stórleikur í deildinni heima um næstu helgi gegn Real Madrid.

"Þetta er afar mikilvæg vika fyrir okkur. Ég á ekki von á því að Benfica liggi of aftarlega í kvöld enda er liðið að spila á heimavelli. Við erum með hugann við þann leik og hugsum ekki um Real Madrid fyrr en á morgun."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×