Fótbolti

Dýrmætur sigur hjá Real Madrid

Real Madrid hristi af sér slenið í spænska boltanum í kvöld er liðið vann góðan útisigur, 0-2, á Rayo Vallecano.

Karim Benzema kom Madridar-liðinu yfir með marki af stuttu færi og þannig stóðu leikar í hálfleik. Jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik og Real ekki sérstaklega beitt.

Cristiano Ronaldo kom Real svo í 2-0 með marki úr vítaspyrnu í síðari hálfleik. Hans 25. mark af punktinum í spænsku deildinni.

Real komst upp í fimmta sæti deildarinnar með sigrinum en er fimm stigum á eftir Barcelona og hefur þess utan leikið einum leik meira.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×