Fótbolti

Messi ruglaðist og reyndi að opna rangan bíl

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lionel Messi er ef til vill einn besti knattspyrnumaður allra tíma en hann á það til að ruglast eins og við hin.

Leikmenn Barcelona fóru út að borða saman í vikunni og að því loknu fóru þeir allir í sína bíla. Messi reyndi hins vegar að opna bíl Thiago Alcantara, samherja síns, en þeir aka á samskonar bíl.

Thiago sá leik á borði og gerði sig líklega til að fara upp í bílinn hans Messi. Argentínumanninum virtist hins vegar ekki skemmt, eins og sést á meðfylgjandi myndbandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×