Menning

Vegglistaverk afhjúpað á Seljavegi

Sara og Davíð Örn létu framvindu verksins ráðast á meðan það var í vinnslu.
Sara og Davíð Örn létu framvindu verksins ráðast á meðan það var í vinnslu. fréttablaðið/vilhelm
Vegglistaverkið Ræktaðu garðinn þinn var afhjúpað við Seljaveg 32 í gær, en þar eru vinnustofur Sambands íslenskra myndlistarmanna til húsa. Verkið er eftir þau Söru Riel og Davíð Örn Halldórsson og var unnið fyrir Samband íslenskra myndlistarmanna með stuðningi menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar.

Sara og Davíð unnu verkið í nánu samstarfi. Ekki var stuðst við nákvæmar vinnuteikningar heldur var hugmyndin rædd í grófum dráttum en framvindan látin ráðast við gerð verksins og má því því segja að verkið hafi vaxið líkt og gróðuróreiða og listamennirnir þannig ræktað garðinn í sínum skilningi.

Sara og Davíð Örn hafa verið ötul í sýningarhaldi bæði hérlendis sem erlendis. Davíð er málari sem notar gjarnan sýningarrýmið sem striga. Sara vinnur með ýmsa miðla og hefur einbeitt sér að veggverkum undanfarin misseri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.