Fótbolti

Arbeloa: Leikmenn efast ekki um heilindi Ronaldo

Sirkusinn í kringum óánægju Cristiano Ronaldo heldur áfram. Samt veit enginn enn af hverju hann er svona rosalega óánægður.

Alvara Arbeloa, leikmaður Real, segir að enginn af leikmönnum liðsins efist um að Ronaldo sé að leggja sig fram fyrir liðið.

"Við vitum að hann er skuldbundinn liðinu og leggur sig allan fram. Ég veit að stuðningsmennirnir eru líka þakklátir Cristiano fyrir hans vinnu sem og öll mörkin," sagði Arbeloa.

"Cristiano hlýtur að vita að stuðningsmenn liðsins eru á bak við hann. Hann getur ekki efast um það eftir allan stuðninginn sem hann fær. Hann er ekki einn út á vellinum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×