Fótbolti

Fabregas: Ég er ekki heimskur

Spænski miðjumaðurinn Cesc Fabregas segist ekki vera neinn vitleysingur og hann hafi vel gert sér grein fyrir því að hans biði mikil barátta um sæti í Barcelona-liðinu.

Ansi margir spáðu því reyndar að hann yrði meira og minna á bekknum hjá Barca en það hefur ekki gengið eftir enda spilaði hann mikið í fyrra.

Ekki hefur gengið eins vel í upphafi leiktíðar og hefur Fabregas ekki verið upp á sitt besta. Hann hefur mátt þola mikla gagnrýni fyrir sinn leik.

"Það er eins og allur heimurinn hafi allt í einu ákveðið að segja mér að það sé pressa á mér. Ég vissi það allan tímann að það yrði pressa. Ég er ekki heimskur," sagði Fabregas.

"Ég vissi við hverju var að búast. Ég er að keppa við Xavi, Iniesta og Messi. Þetta eru bestu leikmenn heims. Allir leikmenn lenda í hæðum og lægðum en menn verða að berjast fyrir sínu sæti. Ég hef alltaf gert það og mun halda áfram að berjast. Maður verður að sætta sig við ýmsa hluti í boltanum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×