Fótbolti

Gengur ekkert hjá Real Madrid | Átta stigum á eftir Barcelona

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ronaldo og félagar eiga í vandræðum í upphafi leiktíðar.
Ronaldo og félagar eiga í vandræðum í upphafi leiktíðar. Nordicphotos/Getty
Spánarmeistarar Real Madrid halda áfram að valda stuðningsmönnum sínum vonbrigðum í upphafi leiktíðar. Liðið tapaði 1-0 á útivelli gegn Sevilla í kvöld.

Hinn pólskættaði Þjóðverji, Piotr Trochowski, skoraði eina mark leiksins strax á 2. mínútu.

Sevilla lyfti sér upp í 3. sætið með sigrinum. Liðið hefur átta stig en Barcelona er á toppnum með tólf stig.

Real Madrid tapaði sínum öðrum leik á leiktíðinni. Liðið hefur aðeins fjögur stig að loknum fjórum leikjum og er í 10. sæti deildarinnar.

Eftir fjórar umferðir munar því átta stigum á erkifjendunum Barcelona og Real Madrid.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×