Fótbolti

Gulldrengurinn Andrés Iniesta heiðraður á Nou Camp

Stefán Árni Pálsson skrifar
Spánverjinn Andrés Iniesta var á dögunum valinn besti knattspyrnumaður Evrópu árið 2012 af 53 blaðamönnum frá öllum löndum innan UEFA.

Andrés Iniesta hefur í mörg ár verið lykilmaður í stjörnuprýddu Barcelona liði og unnið hvern titilinn á fætur öðru. Hann var magnaður á árinu með Barcelona og fór gjörsamlega á kostum á Evrópumótinu í sumar með Spánverjum en þeir unnu mótið nokkuð sannfærandi.

Leikmaðurinn var heiðraður á Nou Camp og í kvöld og stóðu allir áhorfendur upp og klöppuðu fyrir þessum magnaða knattspyrnumanni.

Hér að ofan má sjá hvernig Nou Camp tók á móti gulldrengnum í Katalóníu í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×