Menning

Utan Hringbrautar í Gerðubergi

Á sýningunni eru myndir frá hverfum sem risu eftir seinni heimstyrjöld.
Á sýningunni eru myndir frá hverfum sem risu eftir seinni heimstyrjöld.
Ljósmyndasýningin Utan Hringbrautar eftir Einar Jónsson verður opnuð í kaffihúsi Gerðubergs á morgun.

Á sýningunni eru myndir sem eiga það sameiginlegt að vera af höfuðborgarsvæðinu utan Hringbrautar. Yfirskrift sýningarinnar vísar til þess að á milli stríða var Reykjavík umlukin af Hringbraut, sem myndaði hálfhring um byggðina. Á sýningunni blínir Einar í gegnum linsuna á hin nýju hverfi, sem taka einkum mið af þörfum fólks á einkabílum og þar eru fáir fótgangandi á ferli.

Myndirnar á sýningunni hafa ekki verið sýndar á Íslandi áður en hluti þeirra var á samsýningu íslenskra og bandarískra ljósmyndara/listamanna í Pyramid Studios í Miami á Flórída 2009.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.