Fótbolti

Barcelona vill semja við Messi til loka ferilsins

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Samkvæmt spænska dagblaðinu AS hefur Sandro Rosell, forseti Barcelona, hug á að gera samning við Lionel Messi sem tryggir að leikmaðurinn spili með félaginu til loka ferilsins.

Messi hefur síðan 2005 fimm sinnum framlengt samninga sína við Barcelona og er nú samningsbundinn félaginu til 2016.

Barcelona vill nú binda enda á stöðugar vangaveltur um samningamál og svo gott sem fastráða hann til félagsins. Messi sagði nýlega í viðtölum í Argentínu að hann gæti freistast til að spila með æskufélaginu Newell's Old Boys áður en ferli hans lýkur.

Messi hefur fengið betri kjör með hverjum samningi og því óvíst hvort hann sé reiðubúinn til að fórna því með áðurnefndri fastráðningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×