Fótbolti

Carvalho má fara frá Real Madrid

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Varnamaðurinn Ricardo Carvalho hefur fengið þau skilaboð frá Jose Mourinho, stjóra Real Madrid, að hann megi nú finna sér nýtt félag til að spila með.

Lokað verður fyrir félagaskipti á föstudag og hefur því Carvalho nokkra daga til að koma sér annað. Hann á eitt ár eftir af núverandi samningi sínum við Real Madrid og getur því valið að klára tímabilið í spænsku höfuðborginni.

Samkvæmt enskum fjölmiðlum munaði litlu að Carvalho hefði gengið til liðs við QPR fyrr í mánuðinum og er ekki talið útilokað að hann muni snúa aftur í ensku úrvalsdeildina. Carvalho lék áður með Chelsea en kom til Real árið 2010.

„Málið snýst um hvort hann vilji spila fótbolta eða vera áfram hjá Real Madrid," sagði Mourinho við spænska blaðamenn í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×