Íslenski boltinn

Sænskur framherji til Þór/KA

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sandra María og félagar fá góðan liðsstyrk.
Sandra María og félagar fá góðan liðsstyrk. Mynd/Valli
Topplið Þór/KA í Pepsi-deild kvenna hefur fengið liðsstyrk í titilbaráttunni. Sænski framherjinn Rebecca Johnson hefur gengið til liðs við félagið.

Johnson er 23 ára og lék síðast með Dalsjöfors í sænsku deildinni. Félagið, sem lék í suðurhluta sænsku 1. deildarinnar, varð gjaldþrota á dögunum og þurftu leikmenn því að leita sér að nýju liði.

Johnson hefur ekki fengið leikheimild og leikur því ekki með norðankonum gegn Val í dag. Hún er þó mætt á Hlíðarenda og er á leikskýrslu norðankvenna. Leikurinn verður í beinni textalýsingu hér á Vísi.

Johsnon leikur því fyrst leik sinn fimmtudaginn 9. ágúst þegar liðið tekur á móti FH.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×