Fótbolti

FH komið áfram í Evrópudeildinni

Úr fyrri leik liðanna.
Úr fyrri leik liðanna. Mynd / Ernir
FH-ingar eru komnir áfram í Evrópudeild UEFA eftir sigur, 0-1, á Eschen/Mauren í Liechtenstein í kvöld. FH vann rimmu liðanna 3-1 samtals.

Það var Atli Guðnason sem skoraði eina mark leiksins strax á 12. mínútu.

FH-ingar voru mun sterkari allan leikinn en gekk illa að nýta færin sín.

Þeir kláruðu þó leikinn og komust áfram sem skiptir öllu máli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×