Íslenski boltinn

Sandra María Jessen besti leikmaður fyrstu níu umferðanna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sandra María.
Sandra María.
Sandra María Jessen, leikmaður Þór/KA í Pepsi-deild kvenna, var í dag útnefnd besti leikmaður fyrstu níu umferðanna. Þá var þjálfari hennar hjá Þór/KA, Jóhann Kristinn Gunnarsson, valinn þjálfari umferðanna.

Valið var tilkynnt á afhendingu í höfuðstöðvum Ölgerðarinnar í hádeginu í dag sem stendur að verðlaununum í samstarfi við Knattspyrnusamband Íslands.

Lið umferðanna var einnig valið. Þór/KA á flesta leikmenn í liðinu eða fjóra, Breiðablik og Stjarnan þrjá og ÍBV einn.

Liðið er þannig skipað:

Markvörður

Sandra Sigurðardóttir, Stjarnan

Aðrir leikmenn

Anna Björk Kristjánsdóttir, Stjarnan

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Stjarnan

Fanndís Friðriksdóttir, Breiðablik

Hlín Gunnlaugsdóttir, Breiðablik

Rakel Hönnudóttir, Breiðablik

Arna Sif Ásgrímsdóttir, Þór/KA

Katrín Ásbjörnsdóttir, Þór/KA

Kayle Grimsley, Þór/KA

Sandra María Jessen, Þór/KA

Danka Podovac, ÍBV

Dómari umferðanna var valinn Óli Njáll Ingólfsson og stuðningsmenn Breiðabliks fengu stuðningsmannaverðlaunin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×