Íslenski boltinn

Serbneskar landsliðskonur semja við KR

Anna Garðarsdóttir og félagar eru að fá fínan liðsstyrk.
Anna Garðarsdóttir og félagar eru að fá fínan liðsstyrk.
Botnlið KR í Pepsi-deild kvenna hefur fengið liðsstyrk fyrir seinni hluti mótsins því tvær serbneskar landsliðskonur hafa samið við félagið.

Þær heita Milena Pesic og Monika Siskovic og eru fæddar 1984 og 1990.

Pesic lék sjö leiki í undankeppni EM fyrir Serba og skoraði eitt mark. Siskovic á þrjá landsleiki á bakinu.

KR hefur aðeins fengið tvö stig í fyrstu níu leikjum mótsins og veitir því ekki af liðsstyrknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×