Menning

Safnadagurinn haldinn hátíðlegur í dag

Listasafn Einars Jónssonar
Listasafn Einars Jónssonar
Íslenski safnadagurinn er í dag en þá vekja söfn um allt land athygli á starfsemi sinni. Dagskrá safnanna í dag er fjölbreytt og beri vitni um fjölbreytileika íslenskrar safnaflóru.

Hönnun, myndlist, menningarsaga og náttúruminjar er meðal þess sem söfnin gera skil. Oft er þó ólíkum hlutum teflt saman rétt eins og á sýningunni Nautn og notagildi; myndlist og hönnun á Íslandi sem opnar í Listasafni Árnesinga í dag.

Á verða náttúru- og menningarminjar settar saman með nýstárlegum hætti á sýningu Menningarmiðstöðvar Þingeyinga á Húsavík. Á sýningunni er lögð áhersla á að draga fram samspil manns og náttúru. Sýningin er tilnefnd til íslensku safnaverðlaunanna sem afhent verða á Bessastöðum í dag.

Hægt er að finna dagskrána á vef Safnaráðs.

Íslenski safnadagurinn var fyrst haldinn árið 1997 og þá að frumkvæði safnmanna sjálfra. Markmiðið með deginum er að benda á mikilvægi faglegrar varðveislu og miðlunar sameiginlegra verðmæta þjóðarinnar.

Íslensku safnaverðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Byggðasafn Suður-Þingeyinga, Listasafn Einars Jónssonar og Þjóðminjasafn Íslands eru tilnefnd.

Íslandsdeild Alþjóðaráðs safna og Félag íslenskra safna og safnmanna standa saman að verðlaununum sem veitt eru annað hvert ár safni með starfsemi sem þykir skara fram úr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.