Fótbolti

Bielsa áfram hjá Athletic Bilbao eftir allt saman

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/Getty
Marcelo Bielsa verður áfram knattspyrnustjóri Athletic Bilbao í efstu deild spænska boltans. Argentínumaðurinn sagði starfi sínu lausu fyrir helgi.

„Ég get haldið áfram vinnu mínu eins og ég hef gert hingað til. Ég stend við skuldbindingar mínar gagnvart félaginu," sagði Bielsa í yfirlýsingu í dag.

Argentínumaðurinn gagnrýndi verktaka sem sér um byggingu nýs æfingasvæðis félagsins fyrir helgi. Félagið tók ekki undir gagnrýni Bielsa sem þótti nóg um og sagði upp störfum.

Bielsa mætti hins vegar á æfingu í dag líkt og ekkert hefði í skorist. Argentínumaðurinn náði frábærum árangri með liðið í fyrra á hans fyrsta tímabili með liðið.

Liðið hafnaði í öðru sæti bæði í Konungsbikarnum og Evrópudeildinni. Félagið er þekkt fyrir að tefla aðeins fram böskum í liði sínu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×