Fótbolti

Drogba orðaður við Barcelona

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/Getty
Framherjinn Didier Drogba er orðaður við spænska félagið Barcelona í spænskum fjölmiðlum í kvöld. Drogba, sem nýverið samdi við Shangai Shenhua í Kína, má yfirgefa félagið bjóðist honum að ganga til liðs við Börsunga.

Í samningi Drogba við kínverska félagið er klausa þess efnis að hann megi ganga til liðs við Barcelona bjóðist honum það. Drogba er sagður væntanlegur til Barcelona á morgun en óvíst er hvort áhugi Börsunga á Fílabeinsstrendingnum sé gagnkvæmur.

Á vefmiðlinum Mundo Deportivo kemur fram að Drogba hafi áður sent þau skilaboð til Börsunga að hann væri til í að spila fyrir félagið en ekki fengið þau svör sem hann reiknaði með. Samkvæmt nýjustu tíðindum er ekki loku fyrir það skotið að Drogba gangi til liðs við lærisveina Tito Vilanova.

Drogba yfirgaf enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea á frjálsri sölu að lokinni síðustu leiktíð. Óhætt er að segja að Drogba hafi hætt þegar hæst stóð leik en Chelsea varð Evrópumeistari eftir sigur á FC Bayern í úrslitaleik Meistaradildar Evrópu. Drogba skoraði í venjulegum leiktíma og úr síðustu spyrnu Chelsea í vítakeppni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×