Sport

Sindri Þór í 44. sæti í 100 metra flugsundi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sindri Þór í 200 metra flugsundinu í gær.
Sindri Þór í 200 metra flugsundinu í gær. Mynd / AFP
Sindri Þór Jakobsson hafnaði í 44. sæti af 53 keppendum í undanrásunum í 100 metra flugsundi á Evrópumeistaramótinu í sundi í Ungverjalandi í morgun.

Sindri Þór synti á 55.37 sekúndum og var 3.05 sekúndum á eftir forystusauðinum Laszlo Cseh frá Ungverjalandi.

Sindri Þór, sem gerðist norskur ríkisborgari árið 2010, er uppalinn á Akranesi og á íslenska foreldra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×