Fótbolti

Alves missir af úrslitaleiknum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Dani Alves, leikmaður Barcelona.
Dani Alves, leikmaður Barcelona. Nordic Photos / Getty Images
Barcelona hefur staðfest að Brasilíumaðurinn Dani Alves sé viðbeinsbrotinn og verði frá næstu tvo mánuðina. Hann gekkst undir aðgerð í dag.

Alves mun því missa af úrslitaleik spænsku bikarkeppninnar þann 25. maí en þá mætir Barcelona liði Athletic Bilbao.

Hann meiddist á æfingu í morgun og var sendur í aðgerð stuttu eftir að læknisskoðun leiddi í ljós hversu alvarleg meiðslin væru.

Alves mun geta byrjað að æfa á ný í júlí en þá hefst undirbúningur Barcelona fyrir nýtt tímabil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×