Hamann: Bayern mun ekki ráða við Drogba Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. maí 2012 20:30 Didier Drogba. Mynd/Nordic Photos/Getty
Dietmar Hamann, fyrrum miðjumaður Bayern München, Liverpool og þýska landsliðsins, spáir því að Chelsea vinni Bayern München í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á morgun og ástæðan fyrir því sé Didier Drogba. „Didier Drogba er aðalmaðurinn hjá Chelsea. Þegar hann nær sé á strik þá ræður enginn við hann. Drogba er stórkostlegur leikmaður og það er frábært hvernig hann leiðir sitt lið sem fremsti maður. Ef hann á góðan leik á laugardaginn þá eiga þeir góða möguleika á því að vinna," sagði Dietmar Hamann. „Drogba var frábær í undanúrslitaleiknum á móti Barcelona sem og í bikarúrslitaleiknum á móti Liverpool. Bayern-liðið þarf að undirbúa sig fyrir það að verjast honum því hann er afar kraftmikill," sagði Hamann. John Terry, Branislav Ivanovic, Ramires og Raul Meireles eru allir í leikbanni hjá Chelsea í þessum leik en Hamann segir enska liðið ráða við það. Luiz Gustavo, David Alaba og Holger Badstuber eru allir í banni hjá Bayern. „Það er mín tilfinning að Chelsea sé með breiðari hóp og eigi auðveldara með að vega upp þá leikmenn sem vantar. Þetta verður frábær úrslitaleikur en ég tel að Chelsea eigi meiri möguleika með reynslubolta innanborðs eins og Drogba, Ashley Cole, Frank Lampard og Petr Cech. Bayern er á heimavelli en þeir eru líka án sterkra leikmanna. Þetta verður jafn leikur en ég spái Chelsea sigri," segir Hamann.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Sjá meira