Fótbolti

Bale efstur á óskalista Barcelona

Spænskir fjölmiðlar segja að velski vængmaðurinn Gareth Bale hjá Tottenham sé orðinn efstur á óskalista Barcelona fyrir næsta tímabil.

Barcelona er sagt ætla að bjóða 30 milljónir punda í leikmanninn en hvort það dugir til þess að fá Bale til Spánar er önnur saga.

Börsungar eru einnig sagðir vilja fá Robin van Persie frá Arsenal en þar sem þjálfarinn fær aðeins 40 milljónir punda til þess að versla í sumar er ljóst að Barcelona þarf að selja til þess að landa þeim báðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×