Veigar Páll búinn að missa fimm kíló | Var ekki í góðu formi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. apríl 2012 12:00 Veigar Páll Gunnarsson á landsliðsæfingu. Mynd/Stefán „
Það er erfitt að spila vel þegar maður er ekki í nógu góðu formi," segir landsliðsmaðurinn Veigar Páll Gunnarsson sem hefur spilað aðeins einn hálfleik með Vålerenga á tímabilinu. Veigar Páll var í byrjunarliði Vålerenga í fyrsta leik liðsins á tímabilinu en var tekinn af velli í hálfleik. Síðan þá hefur hann annað hvort verið á bekknum eða hreinlega upp í stúku. „En ég og Martin (Andersen, þjálfari liðsins) erum með áætlun í gangi. Við erum komnir vel á veg og ekki langt þar til ég verð kominn aftur á fullt," sagði Veigar Páll við norska fjölmiðla í dag. Hluti af áætluninni var að létta sig. „Ég held að ég hafi aldrei verið jafn léttur og ég er í dag," sagði hann í léttum dúr en hann hefur tekið um fimm kíló af sér, segir í frétt TV2 um málið. „Ég veit ekki hvort ég nái leiknum gegn Lilleström á morgun en það er klárt mál að ég verð með um næstu helgi," bætti hann við. Þjálfarinn Andersen segir að það sé mikil samkeppni um stöður hjá Vålerenga og óhjákvæmilegt að góðir leikmenn þurfi stundum að sætta sig við bekkjarsetu. Hann segir að meiðsli í lærvöðva hafi einnig gert Veigar Páli erfitt fyrir.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Danski dómarinn aftur á börum af velli Handbolti „Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum“ Íslenski boltinn Trump fékk gulllykil og sagði tollastríðið auka spennu fyrir HM Fótbolti Björgvin Páll strax kallaður aftur í landsliðið Handbolti Svindlaði á öllum lyfjaprófum Sport Cucurella sendi Chelsea upp fyrir meistarana Enski boltinn Glódís úr leik í fyrsta sinn á ferlinum Fótbolti „Vorum að passa okkur og hlupum ekki neitt“ Enski boltinn Um orðaskak sitt við LeBron James: „Snerist um son hans“ Körfubolti Laglegt mark Alberts gegn Napoli sem vildi láta reka hann af velli Fótbolti Fleiri fréttir Laglegt mark Alberts gegn Napoli sem vildi láta reka hann af velli Í beinni: Manchester United - Arsenal | Erkifjendur berjast í Leikhúsi draumanna Cucurella sendi Chelsea upp fyrir meistarana Son tryggði Spurs stig úr víti „Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum“ Glódís úr leik í fyrsta sinn á ferlinum Hættur og segir sambandið sleikja sig upp við Courtois Fyrsta mark Rúnars í síðasta leik fyrir val Arnars Áfall fyrir Gísla Gotta sem meiddist í öxl Trump fékk gulllykil og sagði tollastríðið auka spennu fyrir HM „Vorum að passa okkur og hlupum ekki neitt“ Everton ekki tapað í síðustu átta deildarleikjum sínum FH sækir liðsstyrk út fyrir landsteinana Liðslæknir Barcelona lést óvænt og leik kvöldsins frestað Hákon Arnar og félagar með góðan sigur fyrir leikinn mikilvæga gegn Dortmund Villa blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Þórir Jóhann lagði upp í súru tapi gegn AC Milan „Slakir og hægir í fyrri hálfleik“ Sjaldséð tækifæri Sveindísar og Ingibjörg í undanúrslit Jason Daði lagði upp gegn toppliðinu en Benoný haldið á bekknum Liverpool þurfti að hafa fyrir hlutunum gegn botnliðinu Forest tók stórt skref í átt að Meistaradeild Evrópu Heimir vill Keane meira en alla aðra í sitt landslið Ronaldo skaut á aðdáanda: Þú ert ljótur og ekkert líkur mér Heimir svaraði fyrir sig í vinsælum spjallþætti Finnur sig vel í hörkunni á Englandi: „Orðinn fullorðinn maður núna“ Trúir á Óla Kristjáns og Jesú Krist West Ham með dýrara lið en Barcelona og AC Milan Höjlund fékk óvænt hrós þrátt fyrir nítjánda markalausa leikinn í röð Þróttarvöllur hýsir A-landsleiki kvenna í apríl Sjá meira