Fótbolti

Gummi Ben: Forréttindi að vera uppi á sama tíma og Messi

Guðmundur Benediktsson.
Guðmundur Benediktsson.
Lionel Andres Messi leikmaður Barcelona setti enn eitt metið í gær í fótboltanum þegar hann skoraði þrennu í 5-3 sigri Barcelona á Granada. Guðmundur Benediktsson var í viðtali í Boltanum á X-inu í dag og þar sagði hann meðal annars að þetta væri sýning á fjögurra daga fresti og að það væru forréttindi að fá að vera uppi á sama tíma og þessi mikli snillingur.

Þar með hefur Messi skorað 234 mörk fyrir Barcelona sem er félagsmet en gamla metið átti Cesar Rodriquez 232 og var það orðið rúmlega 57 ára gamalt.

"Gummi Ben" sagði einnig að samlíkingin á Michael Jordan körfuboltasnilling væri réttmæt að þessu sinni.

Rétt er að minna á "miðvkudagsmessu" Gumma Ben og Hjörvars Hafliðasonar í kvöld á Sport 2. Gestur þáttarins verður Ingó veðurguð og hver veit nema hann taki lagið í þættinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×