Þóra hélt hreinu og Sara skoraði sigurmarkið þegar Malmö vann Frankfurt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2012 16:54 Sara Björk Gunnarsdóttir. Mynd/Nordic Photos/Getty
Þóra Björg Helgadóttir átti mjög góðan leik í markinu og Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði sigurmarkið þegar LdB Malmö vann þýska liðið 1. FFC Frankfurt 1-0 í fyrri leik liðanna í í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Seinni leikur liðanna fer fram í Þýskalandi í næstu viku. Þóra sýndi mikið öryggi í markinu allan tímann og varði alls níu skot frá leikmönnum Frankfurt en mörg þeirra komu úr góðum færum. Frankfurt pressaði mikið sérstaklega þegar leið á leikinn en Þóra og félagar í vörn LdB Malmö héldu út og unnu mikilvægan sigur. Sara Björk skoraði eina mark leiksins á 25. mínútu eftir að hafa fengið langa sendingu fram völlinn. Sara hafði betur en varnarmaður Frankfurt, lagði fyrir sig boltann og skoraði laglega framhjá markverði Frankfurt. Sara Björk spilar vanalega á miðjunni en spilaði að þessu sinni í sókninni og sýndi sannkallaða framherjatakta í þessu marki. Sara Björk var þarna að skora sitt fimmta mark í Meistaradeildinni á þessu tímabili og hún er í hópi markahæstu leikmanna keppninnar. Þóra hélt hreinu í öðrum leiknum í röð í Meistaradeildinni.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Sjá meira