Fótbolti

Glæsimark Keita í sigri Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Barcelona vann í kvöld 3-1 sigur á Sporting Gijon í spænsku úrvalsdeildinni, þrátt fyrir að hafa verið manni færri næstum allan seinni hálfleikinn.

Andres Iniesta kom Börsungum yfir í lok fyrri hálfleiks en Gerard Pique fékk að líta beint rautt spjald fyrir að ræna leikmann Gijon upplögðu marktækifæri. David Barral jafnaði metin stuttu síðar fyrir gestina.

Seydou Keita náði svo að koma Barcelona aftur yfir ellefu mínútum fyrir leikslok með glæsilegu skoti. Xavi innsiglaði svo sigurinn með því að vippa boltanum yfir markvörð Gijon eftir stungusendingu Iniesta inn fyrir vörn gestanna.

Barcelona er nú sjö stigum á eftir toppliði Real Madrid sem mætir Espanyol á heimavelli sínum annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×