Fótbolti

Mourinho um ferð sína til London: Þarf ekkert að útskýra

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Sögusagnir um að Jose Mourinho ætli að hætta hjá Real Madrid í sumar mögnuðust í vikunni þegar það sást til hans í Lundúnum að skoða hús.

Mourinho hefur verið orðaður við Tottenham og Chelsea, hans gamla félag, en sjálfur vildi hann ekkert ræða málið við spænsku pressuna á blaðamannafundi í gær.

„Mitt einkalíf kemur öðrum ekkert við og þarf ég ekki að gefa neinar útskýringar á mínum gjörðum," sagði hann. „Ég upplýsi félagið um mínar ferðir af kurteisissökum en ég þarf ekki að segja ykkur neitt."

Svo bætti hann þessu við: „Á mánudaginn fer ég svo aftur í burtu. En ég vil ekki tala um þetta. Það er ekki tímabært."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×