Fótbolti

Dómarar vilja að Pique verði refsað

Spænskir dómarar eru brjálaðir út í Gerard Pique, varnarmann Barcelona, og vilja að honum verða refsað fyrir ummæli sem hann lét út úr sér um helgina.

Pique var rekinn af velli á laugardag í leik Barca og Sporting Gijon og hélt því svo fram að dómarinn hefði verið búinn að ákveða að reka sig út af.

"Þessi ummæli eru afar óheppileg og alvarleg. Það sýður á manni er maður heyrir svona. Íþróttamenn þurfa að bera meiri virðingu en þetta fyrir dómaranum," sagði Victoriano Arminio, forseti spænska dómarasambandsins.

"Það kemur ekki annað til greina en að kæra hann til knattspyrnusambandsins. Við viljum að honum verði refsað fyrir þessi ummæli."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×