Fótbolti

Hulk heitur fyrir Barcelona og Real Madrid

Hulk.
Hulk.
Einn eftirsóttasti leikmaðurinn í Evrópu um þessar mundir er Brasilíumaðurinn Hulk hjá Porto. Nánast engar líkur eru á því að hann verði áfram hjá félaginu næsta vetur.

Hann hefur skapað sér nafn í Evrópuboltanum síðan hann kom til Porto frá Tokyo Verde árið 2008. Hann er þess utan kominn í brasilíska landsliðið.

Hulk hefur lengstum verið orðaður við Chelsea en einnig við stóru félögin á Spáni sem hann virðist vera afar heitur fyrir.

"Mér þykir mjög vænt um Porto en hver myndi ekki vilja spila með Barcelona? Einnig Real Madrid. Ég get ekki neitað því að ég væri til í að spila með báðum félögum," sagði maðurinn með ofurhetjunafnið.

Hulk var nálægt því að semja við Atletico Madrid á sínum tíma en fór á endanum til Porto.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×