Fótbolti

Ronaldo enn og aftur hetja Real Madrid

Higuain fagnar marki sínu í kvöld.
Higuain fagnar marki sínu í kvöld.
Cristiano Ronaldo sá til þess enn eina ferðina í kvöld að Real Madrid fengi þrjú stig. Hann skoraði þá tvö mörk í 2-3 sigri á Real Betis.

Real Madrid er því sem fyrr með þrettán stiga forskot á Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni.

Heimamenn komust snemma yfir en Higuain jafnaði fyrir hlé. Ronaldo kom Real yfir snemma í síðari hálfleik en heimamenn náðu að jafna þrem mínútum síðar.

Það var síðan Ronaldo sem skoraði sigurmarkið stundarfjórðungi fyrir leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×