Fótbolti

Ronaldo: Við erum ekki búnir að vinna neitt

Ronaldo og Mourinho fagna í gær.
Ronaldo og Mourinho fagna í gær.
Real Madrid er komið í afar vænlega stöðu í spænsku úrvalsdeildinni eftir helgina. Madridarliðið er nú með tíu stiga forskot á Barcelona og margir á því að liðið sé nú þegar búið að tryggja sér spænska meistaratitilinn.

Cristiano Ronaldo, stjarna Real, er þó ekki sammála því og segir að hans lið þurfi að vera á tánum. Ronaldo var í frábæru formi um helgina er hann skoraði þrennu í 4-2 sigri á Levante.

"Það er enn mikið eftir af deildarkeppninni. Við erum að spila vel. Þetta var erfiður leikur en eftir að við skoruðum varð þetta auðveldara. Við verðum að halda áfram á þessari braut því við erum ekki búnir að vinna neitt."

Ronaldo er markahæstur í spænsku deildinni en hann er búinn að skora fjórum mörkum meira en Lionel Messi, leikmaður Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×