Fótbolti

Ever Banega fótbrotnaði við það að setja bensín á bílinn

Ever Banega í leik með Valencia.
Ever Banega í leik með Valencia. Mynd. / Getty Images
Ever Banega, leikmaður Valencia, var fjarri góðu gamni í kvöld þegar lið hans lék við Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni en hann náði á einhvern óskiljanlegan hátt að fótbrotna við það að setja bensín á bíl sinn.

Banega hefur líklega gleymt að setja bílinn í handbremsu og því rann faratækið á leikmanninn með þeim afleiðingum að hann meiddist nokkuð illa. Leikmaðurinn mun þurfa gangast undir aðgerð vegna slysins og leikur líklega ekki meira með Valenciea á tímabilinu.

Banega hefur átt fast sæti í byrjunarliði Valencia á tímabilinu og því eru þetta gríðarleg vonbrigði fyrir leikmanninn þar sem hann missti af heimsókninn á Neu Camp í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×