Fótbolti

Pepe sleppur við bann fyrir að traðka á Messi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Messi og Pepe berjast um boltann á Bernabeu í síðustu viku.
Messi og Pepe berjast um boltann á Bernabeu í síðustu viku. Nordic Photos / Getty Images
Pepe, portúgalski varnarmaður Real Madrid, fær enga refsingu fyrir að traðka á Lionel Messi leikmanni Barcelona í viðureign félaganna í Konungsbikarnum í síðustu viku. Spænska knattspyrnusambandið komst að þessari niðurstöðu á fundi sínum á mánudag. Reuters-fréttastofan greinir frá þessu.

Framkoma Pepe í leiknum í Madrid á miðvikudaginn var hefur vakið mikla athygli í knattspyrnuheiminum. Auk þess að traðka, að því er virtist viljandi á Messi, bauð Pepe upp á ýktan leikaraskap og braut fólskulega af sér.

Pepe hefur beðist afsökunar á framkomu sinni í leiknum en um leið neitað að hafa viljandi stigið á hönd Messi. Atvikið fór framhjá dómara leiksins og hann minntist ekkert á það í skýrslu sinni.

Ákvörðun spænska knattspyrnusambandsins þýðir að Pepe má leika síðari leik félaganna sem fram fer í Barcelona á miðvikudagskvöld. Óvíst er hvort Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Real Madrid, tefli honum fram en hann var ekki í leikmannahópi liðsins sem lagði Athletic Bilbao í deildinni á sunnudagskvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×