Fótbolti

Maxwell á förum frá Barcelona til PSG

Maxwell fagnar með Alves og Xavi.
Maxwell fagnar með Alves og Xavi.
Brasilíski bakvörðurinn Maxwell er á leið frá Barcelona til PSG en franska liðið mun safna miklu liði næstu vikur og mánuði.

Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, er tilbúinn að sleppa bakverðinum sem er að klára sitt þriðja tímabil með Evrópumeisturunum.

Barcelona er þegar búið að taka tilboði PSG í leikmanninn sem vill ólmur komast til Parísar.

Maxwell er orðinn þrítugur og lék með Ajax áður en hann fór til Spánar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×