Fótbolti

Lionel Messi frumsýnir nýja takkaskó í El Clasico í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi
Lionel Messi Mynd/Nordic Photos/Getty
Lionel Messi hefur verið á skotskónum það sem af er þessu tímabili með Barcelona en argentínski snillingurinn er ekkert hræddur við að skipta um takkaskó. Messi ætlar nefnilega að frumsýna nýja skó í El Clasico á kvöld þar sem Barcelona mætir Real í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum spænska bikarsins.

Lionel Messi er þessa dagana að kynna nýja adidas-skó sem heita F50 adizero en skórnir í kvöld verða í blárri og rauðri útgáfu. Messi lék í gullnum skóm í sínum fyrsta leik eftir að hann fékk Gullbolta FIFA og skoraði þá tvö mörk í 4-2 sigri á Real Betis á sunnudagskvöldið.

Messi hefur nú skorað 33 mörk í 30 leikjum með Barcelona í öllum keppnum á þessu tímabili en þar af hafa 19 þeirra komið í 18 leikjum í spænsku deildinni.

F50 adizero skórnir hafa fengið mikið lof enda hannaðir eftir nýjustu tækni í dag og vega sem dæmi aðeins 165 grömm. Skórnir eru líka sérhannaðir fyrir hvern og einn leikmann og fer lokahönnun þeirra eftir því hvernig hlaup leikmaðurinn tekur og hve mikið leikmaðurinn hleypur í leik.

Messi verður reyndar ekki sá eini á Santiago Bernabeu í kvöld sem klæðist F50 adizero skónum því Real Madrid mennirnir Karim Benzema og Fabio Coentrao eru báðir í slíkum skóm sem hafa verið sérhannaðir fyrir þá.

Til að fullkomna skóna hjá Messi þá er áletrunin "FIFA Ballon d'Or Player of the Tear" saumuð í hliðina á skónum hans til að það fari ekkert á milli mála hver sé þar á ferð. Hér fyrir ofan má sjá myndir af skónum frá því í leiknum á móti Real Betis um helgina.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×