Barcelona vann enn einn sigurinn á Real Madrid Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. janúar 2012 22:58 Carles Puyol fagnar hér marki sínu. Mynd/Nordic Photos/Getty
Barcelona lenti 0-1 undir en vann engu að síður 2-1 sigur á Real Madrid í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum spænska Konungsbikarsins en leikurinn í kvöld fór fram á heimavelli Real Madrid. Real Madrid hefur því ekki enn tekist að vinna Barcelona á þessu tímabili en Barcelona vann þarna erkifjendur sínar í þriðja sinn en fjórði leikurinn endaði síðan með jafntefli. Næstu tveir leikir liðanna fara síðan fram á Nývangi í Barcelona þar á meðal seinni leikurinn í bikarnum í næstu viku. Cristiano Ronaldo kom Real Madrid í 1-0 á 11. mínútu eftir að hafa fengið boltann frá Karim Benzema og leikið skemmtilega á Gerard Pique. Skömmu síðar átti Alexis Sanchez skalla í slána en Real Madrid var 1-0 yfir í hálfleik. Það tók Börsunga aðeins þrjár mínútur í seinni hálfleik að jafna leikinn en fyrirliðinn Carles Puyol skoraði þá með skalla eftir hornspyrnu frá varafyrirliðanum Xavi. Eric Abidal skoraði síðan sigurmark Barcelona á 78. mínútu eftir að hafa fengið sendingu frá Lionel Messi. Þetta var þriðji heimaleikur Real Madrid í röð á móti Barca á tímabilinu þar sem liðið kemst yfir í upphafi leiks en tekst ekki að landa sigri. Real komst líka í 1-0 í síðasta deildarleik en tapaði 1-3 og liðin gerðu 2-2 jafntefli í Meistarakeppninni á Spáni í haust eftir að Real komst í 1-0.
Spænski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Sjá meira