Fótbolti

Real rúllaði yfir Granada

Benzema og Özil fagna í kvöld.
Benzema og Özil fagna í kvöld.
Real Madrid náði í kvöld sex stiga forskoti á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar. Real valtaði þá yfir Granada á heimavelli og vann stórsigur, 5-1.

Karim Benzema kom Real snemma yfir en Moreno Rico jafnaði metinu skömmu síðar. Sergio Ramos náði svo forystunni á ný fyrir Real áður en flautað var til hálfleiks.

Real átti algjörlega síðari hálfleikinn og gerði út um leikinn á fyrstu fimm mínútum hálfleiksins er þeir Gonzalo Higuain og Karim Benzema skoruðu. Cristiano Ronaldo fullkomnaði svo gott kvöld hjá Real með því að skora fimmta markið undir lokin.

Real er því með sex stiga forskot á Barcelona en hefur leikið einum leik meira.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×