Innlent

Fór að huga að morði eftir gerð YouTube myndbandsins

Jón Hákon Halldórsson skrifar

Hugmynd Gunnars Rúnars Sigurþóssonar um að losna við Hannes Þór Helgason virðist hafa sprottið upp eftir að hann setti myndband á YouTube með ástarjátningu til hennar til unnustu Hannesar. Þetta kom fram í máli Tómasar Zoega geðlæknis sem gerði yfirmat á Gunnari Rúnari Sigurþórssyni ásamt Kristni Tómassyni geðlækni.

Gunnar Rúnar og Hildur, unnusta Hannesar heitins, voru skólafélagar í grunnskóla. Leiðir þeirra skyldu eftir grunnskólann en þau hittust aftur fyrir tæpum tveimur árum síðan þegar að Gunnar Rúnar var að vinna hjá tölvufyrirtæki og Hildur var að vinna á veitingastað í Smáralind. Með þeim þróast kynni á ný og Gunnar Rúnar verður ástfanginn af Hildi. Í yfirmati geðlækna kemur fram að hann hafi talið að sú ást væri endurgoldin án þess að nokkuð tilefni væri til að ætla það. Gunnar Rúnar setti svo myndskeiðið á netið og þá fer hann að huga að morðinu á Hannesi.Í yfirmati geðlækna kemur fram að Gunnar Rúnar hafi haft þráhyggju gagnvart öðru á, þar á meðal samstarfsfélaga. Þá hafi hann jafnframt tvisvar sinnum lent í útistöðum við skólafélaga í efri bekkjum grunnskóla sem varð til þess að hann sótti aðstoð frá Barna- og unglingageðdeild Landspítalans.

Gunnar Rúnar þarf vistun á öryggisdeild samkvæmt yfirmati geðlækna.

Meðfylgjandi er ástarjátning Gunnar Rúnars sem enn má finna á heimasíðu Youtube.




Tengdar fréttir

Gunnar Rúnar svarar engu - víkur úr dómsal

Gunnar Rúnar Sigurþórsson svarar engum spurningum við aðalmeðferð sem nú stendur yfir þar sem hann er ákærður fyrir að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana. Lögmaður Gunnars, Guðrún Sesselja Arnardóttir, tilkynnti við upphaf aðalmeðferðarinnar í morgun að hann myndi nýta sér rétt sinn til að svara engum spurningum heldur aðeins staðfesta lögregluskýrslur. Gunnar Rúnar óskaði eftir að víkja úr dómsal á meðan aðalmeðferðin stendur yfir, utan þess þegar hann staðfestir lögregluskýrslur, og var orðið við þeirri beiðni. Að þessu loknu var gert stutt hlé á þinghaldi en næst á dagskrá er skýrslutaka af geðlæknum.

Djúpstæð sektarkennd vegna morðsins

Gunnar Rúnar Sigurþórsson þroskaðist eðlilega sem ungt barn en varð fyrir hörmulegu áfalli þegar faðir hans svipti sig lífi. Þetta sagði Helgi Garðar Garðarsson geðlæknir sem gerði geðrannsókn á Gunnari Rúnari eftir að hann var handtekinn vegna morðsins á Hannesi Þór Helgasyni í ágúst. Helgi Garðar bar vitni í dómnum í morgun. Helgi Garðar telur Gunnar Rúnar vera ósakhæfan og vill að hann sæti öryggisgæslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×