Fótbolti

Smáliðið sem skákar Barcelona og Real Madrid

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Fyrirliðinn Sergio Ballesteros er orðinn 36 og með léttan björgunarhring.nordic photos/getty images
Fyrirliðinn Sergio Ballesteros er orðinn 36 og með léttan björgunarhring.nordic photos/getty images
Áður en keppnistímabilið hófst í spænska fótboltanum var Levante spáð falli af flestum sérfræðingum. Enginn átti von á því að smáliðið frá borginni Valencia næði að veita Barcelona og Real Madrid einhverja keppni. Levante er í efsta sæti spænsku deildarinnar þegar átta umferðum er lokið. Á Spáni bíða allir eftir því að Levante-„bólan“ springi en liðið hefur m.a. unnið Real Madrid 1-0 á heimaveli.

Ekkert lið í spænsku deildinni eyðir minna fé en Levante. Heildarvelta liðsins er um 350 milljónir króna á ári. Til samanburðar er veltan hjá Barcelona um 80 milljarðar og norska meistaraliðið Rosenborg er með ársveltu upp á rúmlega 420 milljónir króna.

Eftir 3-0 sigur Levante um helgina gegn Villareal er smáliðið á toppnum með 20 stig, Real Madrid er þar næst með 19 stig og spænska meistaraliðið Barcelona er í þriðja sæti með 18 stig.

Levante er nú þegar búið að innbyrða fleiri stig en eftir 21 umferð á síðustu leiktíð og allt bendir til þess að félagið nái markmiðum sínum – sem var að ná að hanga í deild þeirra bestu. Og fyrir þá sem hafa áhuga þá er næsti leikur Levante gegn Real Sociedad á miðvikudag.

Sá leikmaður sem hefur vakið mesta athygli í Levante er fyrirliðinn Sergio Ballesteros. Hann er alls ekki á óskalista stórklúbba í Evrópu enda er Ballesteros 36 ára gamall og að margra mati akfeitur.

Baðvigtin lýgur ekki og Ballesteros er 100 kíló og með „aukahluti“ á kviðnum sem flestir fótboltamenn vilja vera án. Varnarmaðurinn hefur leikið um 300 leiki í efstu deild á Spáni og er þaulreyndur þrátt fyrir slæmt líkamsástand.

Fyrirliðinn er eini leikmaðurinn þar sem „síðasti söludagur“ er rétt handan við hornið. Meðalaldur liðsins í leik gegn Malaga á dögunum var rétt um 32 ár. Frábær varnarleikur hefur einkennt Levante það sem af er tímabilinu. Liðið hefur aðeins fengið á sig þrjú mörk í átta leikjum. Levante hefur unnið sex leiki og gert tvívegis jafntefli og er taplaust. Aðeins Barcelona og Sevilla eru í þeim hópi á Spáni þessa stundina.

Árið 2008 var Levante bjargað frá gjaldþroti og félagið hefur aðeins efni á að kaupa ódýrustu leikmennina á markaðnum. Forráðamenn liðsins hafa notað um 63 milljónir króna í kaup á samtals 50 leikmönnum á undanförnum árum. Það gerir rétt um 1,2 milljónir króna að meðaltali.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×