Menning

Hátt í tíu þúsund miðar bókaðir

Sýningin er mikið sjónarspil.
Sýningin er mikið sjónarspil.
Töfraflautan var frumsýnd af Íslensku óperunni í Eldborg í Hörpu um helgina. Margir færustu söngvarar þjóðarinnar ljá ævintýrinu rödd sína. Um er að ræða eina stærstu óperuperlu heims, Töfraflautuna eftir W. A. Mozart. Leikstjórn verksins er í höndum Ágústu Skúladóttur og Daníel Bjarnason er hljómsveitastjóri uppsetningarinnar, sem er sú fimmta hér á landi á þessu meistaraverki Mozarts.

„Töfraflautan er aðgengileg ópera og höfðar til breiðs hóps. Jafnframt er hún mannmörg og fá því margir af okkar fremstu söngvurum á heimsmælikvarða að leiða saman hesta sína," segir Ágústa Skúladóttir, sem bætir við að þetta sé kynngimagnað ævintýri.

„Sýningin er mikið sjónarspil og við leggjum mikið upp úr hinu sjónræna með íburðarmiklum brúðum, búningum og leikmynd. Við gerum allt til heiðurs töfratónum Mozarts, sem hefur verið vægast sagt auðvelt að sækja innblástur til."

Verkið, sem hefur hrifið áhorfendur í þau 220 ár sem liðin eru frá fyrstu frumsýningu í alþýðuleikhúsi í Vínarborg, fjallar um prins frá fjarlægum löndum sem kemur inn í ævintýraheim Næturdrottningarinnar. Hún segir honum frá ráni á dóttur sinni. Hann verður samstundis ástfanginn af prinsessunni og leggur upp í leit að henni ásamt fuglafangaranum, með töfraflautu og klukkuspil í fararnesti.

Ágústa segir það mikinn heiður að sýna í Hörpu og að söngvarar sem og hljómsveit taki hljómi hins stóra sals Eldborgar fagnandi.

Alls verða átta sýningar á Töfraflautunni og hafa nú þegar verið bókaðir hátt í tíu þúsund miðar á óperuna, en leita þarf aftur á annan áratug til að finna jafn mikla miðasölu á óperusýningu á Íslandi.

hallfridur@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.