Sport

Green Bay Packers vann Super Bowl í nótt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aaron Rodgers.
Aaron Rodgers. Mynd/AP
Green Bay Packers vann 31-25 sigur á Pittsburgh Steelers í úrslitasleik ameríska fótboltans í nótt en Super Bowl leikurinn fór þá fram fyrir framan meira en hundrað þúsund manns á hinum stórglæsilega Cowboys Stadium.

Aaron Rodgers, leikstjórnandi Green Bay Packers, var valinn maður leiksins og má segja að hann sé nú kominn út úr skugga Brett Favre sem stýrði Packers-liðinu til fjölda ára á undan Rodgers og leiddi liðið til sigurs í Super Bowl árið 1996.

Þetta var fjórði sigur Green Bay Packers í Super Bowl en liðið kemur aðeins frá 102 þúsund manna bæ. Liðið vann tvo fyrstu leikina um "Ofurskálina" og bikarinn sem keppt er um er skýrður eftir Vince Lombardi, sem stýrði liðinu til sigurs 1967 og 1968.

„Minnsta borgin í deildinni hefur unnið stærsta leikinn. Þetta var frábær leikur milli tveggja klassíska liða," sagði Roger Goodell, yfirmaður NFL, áður en hann afhenti bikarinn.

Aaron Rodgers átti þrjár snertimarkssendingar í leiknum, 24 af 39 sendingum hans heppnuðust og hann kastaði alls 304 metra. Greg Jennings skoraði tvö snertimörk og Jordy Nelson skoraði eitt snertimark og greip níu sendingar.

Green Bay byrjaði leikinn frábærlega og komst í 21-3 en Pittsburgh náði að minnka muninn i 28-25 um miðjan lokaleikhlutann. Liðið sýndi harðfylgni með að klára leikinn eftir að hafa misst tvo mikilvæga leikmenn í meiðsli.

Ben Roethlisberger, leikstjórnandi Steelers, var búinn að vinna tvo tila með Pittsburgh en fann sig ekki í gær.

„Mér líður eins og ég hafi brugðist íbúm Pittsburgh, stuðningsmönunum, þjálfurunum og liðsfélögunum. Það er ekki góð tilfinning," sagði Roethlisberger en þrír tapaðir boltar voru liðinu dýrkeyptir enda skoraði Green Bay 21 stig í framhaldinu af þeim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×