Sterk rök fyrir því að ljúka Icesave málinu 12. janúar 2011 18:11 Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri. Mynd/Pjetur
Seðlabankinn telur sterk rök vera fyrir því að ljúka Icesave-deilunni með samningum við bresk og hollensk stjórnvöld. Bankinn segir nýja Icesave-samninginn töluvert hagstæðari en fyrri samningsdrög. Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögn Seðlabankans um Icesave til fjárlaganefndar Alþingis. Samkvæmt nýja samningnum nemur andvirði skuldbindinganna um 69 milljörðum króna eða sem nemur um 4,3% af áætlaðri landsframleiðslu árið 2010. Sé hins vegar tekið tillit til 20 milljarða króna innistæðu Tryggingarsjóðs innistæðueigenda og fjárfesta er núverði skuldbindingar ríkissjóðs áætlað 49 milljarðar eða sem nemur 3,1% af áætlaðri landsframleiðslu árið 2010. „Þetta eru eftir sem áður miklir fjármunir og óvissa um efnahagslegar forsendur til svo langs tíma er töluverð, en hún er í báðar áttir. Á móti kemur að afgreiðsla þessa máls mun líklega bæta verulega aðgengi íslenskra aðila að alþjóðlegum fjármálamarkaði," segir í umsögninni sem Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, skrifa undir. Þar segir ennfremur að erfitt sé að meta kostnað tafa við endurreisn íslensks atvinnulífs sem rekja megi til þess að ósamið hefur verið deilunni. „Þegar við bætist að úrskurður EFTA-dómstólsins gæti fallið Íslandi í óhag, þrátt fyrir þau rök sem komið hafa fram í innlendri umræður, virðast sterk rök fyrir því að leysa deiluna um uppgjör vegna Icesave-reikninga Landsbankans."
Icesave Mest lesið „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnulíf Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Viðskipti innlent Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þótti baðherbergið ógeðslegt og fór frá Íslandi Neytendur Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Viðskipti innlent Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ Atvinnulíf Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Viðskipti erlent Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Viðskipti innlent „En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Borgin fær milljarða fyrir síðasta þéttingarreit miðborgarinnar Bein útsending: Viðtöl við sérfræðinga um mannauðsmál Uppreisnarleiðtogi snýr heim og tekur við rekstri Hríseyjarbúðarinnar Sýna áhuga á eignum Skagans 3X Indó lækkar líka vexti Íslandsbanki bregst sömuleiðis við stýrivaxtalækkuninni Arion fyrstur til að tilkynna lækkun Engar hópuppsagnir í september Rekstur Rammagerðarinnar gaf vel í fyrra Mikilvægt að íslenskan sé hluti af hverri tæknibyltinguu Gerir óþægilegt samtal auðveldara Þessir sprotar taka þátt í Startup SuperNova í ár Skiltið skuli fjarlægt „Við erum ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna“ Anna Fríða snýr sér að sælgætinu Vaxtahækkun bankanna vó þungt í ákvörðun Ásgeirs Culiacan lokað á Suðurlandsbraut Efla fjármálin með Elfu Herferð í boði Ernu Hreins og Önnu Margrétar Hvíta húsið og Ennemm segja upp fólki Telur ljóst að vaxtalækkunarferlið sé hafið Eirberg hættir með verslunina í Kringlunni í kjölfar brunans Bein útsending: Ásgeir og Rannveig rökstyðja lækkunina Lækkar stýrivextina í fyrsta sinn síðan í árslok 2020 Ekki útilokað að stýrivextir lækki Gengið frá sölu á hluta Endor Sjá meira