Fótbolti

Börsungar samir við sig

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Lionel Messi í leiknum í kvöld.
Lionel Messi í leiknum í kvöld. AFP
Barcelona vann enn einn leikinn í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Nú var það Malaga sem lá í valnum fyrir Börsungum, lokatölur 4-1.

Andres Iniesta skoraði fyrsta markið á áttundu mínútu og David Villa tvöfaldaði forystu Barcelona eftir átján mínútna leik.

Pedro skoraði svo þriðja markið á 36. mínútu og staðan í hálfleik var 3-0.

Duda minnkaði muninn með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu en Villa skoraði fjórða markið þegar hann fór framhjá markmanninum þegr korter lifði leiks. Lokatölur 4-1.

Barcelona er þar með komið með fjögurra stiga forystu á Real Madrid á toppi spænsku deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×