Fótbolti

Atletico Madrid rak þjálfarann

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gregorio Manzano, fyrrum þjálfari Atletico Madrid.
Gregorio Manzano, fyrrum þjálfari Atletico Madrid. Nordic Photos / AFP
Gregorio Manzano hefur verið rekinn úr starfi knattspyrnustjóra hjá spænska úrvalsdeildarfélaginu Atletico Madrid.

Stjórn félagsins ákvað að reka Manzano eftir að liðið datt úr leik í spænsku bikarkeppninni í vikunni eftir að hafa tapað fyrir C-deildarliðinu Albacete.

Atletico hefur heldur ekki gengið neitt sérstaklega vel í deildinni og situr nú í tíunda sæti. Talið er að Diego Simeone, sem var áður leikmaður hjá félaginu, muni taka við liðinu en hann hætti hjá Racing Club í Argentínu á þriðjudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×