Fótbolti

Andres Iniesta meiddist - frá í fimmtán daga

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Andres Iniesta.
Andres Iniesta. Mynd/Nordic Photos/Getty
Spænski landsliðsmaðurinn Andres Iniesta meiddist í 9-0 stórsigri Barcelona á Hospitalet í Konungsbikarnum í gærkvöldi en það fór betur á en horfist og leikmaðurinn verður líklega ekki lengur frá en í fimmtán daga.

Andres Iniesta lenti þá í samstuði við markmann Hospitalet eftir aðeins hálftíma leik og var í kjölfarið skipt útaf. Iniesta hafði skömmu áður komið Barca í 2-0 í leiknum.

Iniesta hefur verið að glíma við meiðsli á þessu tímabili en hann var sem dæmi frá í mánuð til byrjun október vegna meiðsla aftan í læri.

Iniesta missir ekki af mörgum leikjum að þessu sinni því framundan er jólafríið og næsti leikur liðsins er ekki fyrr en 8. janúar á móti nágrönnunum í Espanyol.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×