Fótbolti

Guti: Real Madrid vinnur Barcelona 3-1

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guti
Guti Mynd/Nordic Photos/Getty
Guti, fyrrum stjarna Real Madrid liðsins, er sannfærður um öruggan sigur Real Madrid á móti Barcelona í El Clasico leiknum sem fer fram á Santiago Bernabéu í Madrid á laugardaginn. Real Madrid getur náð sex stiga forskoti á Barcelona með sigri.

„Real Madrid mun örugglega vinna Barcelona. Ég spái því að leikurinn fari 3-1 fyrir Real," sagði Guti í viðtali við spænska blaðið AS.

„Barcelona treystir of mikið á Lionel Messi. Ef þeir spila án Messi þá eru þeir vanalega í vandræðum. Real Madrid hefur hinsvegar frábæran leikmannahóp og tvo heimsklassa menn í hverri stöðu," sagði Guti.

„Það skiptir ekki máli þótt að Real vanti Cristiano Ronaldo því það eru nóg af hæfileikaríkum mönnum í liðinu sem geta spilað frábæran fótbolta," sagði Guti.

Guti spilaði í fimmtán ár með Real Madrid frá 1995 til 2010 og lék alls 542 leiki með félaginu. Guti varð fimm sinnum meistari með Real: 1996–97, 2000–01, 2002–03, 2006–07 og 2007–08.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×