Fótbolti

Robinho hvetur Neymar til að velja Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Robinho í leik með AC Milan.
Robinho í leik með AC Milan. Nordic Photos / AFP
Brasilíumaðurinn Robinho hefur hvatt landa sinn, hinn stórefnilega Neymar, til þess að velja Barcelona frekar en Real Madrid þegar sá síðarnefndi ákveður að halda til Evrópu.

Neymar er nítján ára gamall og spilar með Santos í heimalandinu. Hann skrifaði nýverið undir nýjan samning við félagið sem gildir til 2014.

Robinho fór á sínum tíma frá Santos til Real Madrid þar sem hann var í þrjú ár. Þaðan fór hann til Manchester City en nú er hann hjá AC Milan á Ítalíu.

„Það er enginn vafi á því að hann ætti frekar að fara til Barcelona,“ sagði hann við spænska blaðið Sport. „Leikstíll Barcelona hentar honum miklu betur. Það er ekki til hroki í leikmönnum Barcelona og mun auðveldara fyrir framherja að fá boltann fyrir framan markið en hjá Real Madrid.“

„Þegar ég fór til Real Madrid hélt ég að það væri besta félag heims. En ég komast að því fljótlega eftir að ég kom að hlutirnir væru aðeins öðruvísi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×