Fótbolti

Bayern, Benfica og Inter komin áfram í 16 liða úrslitin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/AP
Bayern München, Benfica og Inter Milan tryggðu sér í kvöld sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar og Ajax er komið með níu tær í útsláttarkeppnina. Ensku liðunum Manchester United og Manchester City tókst ekki að tryggja sér áfram upp úr sínum riðlunum.

Bayern München tryggði sér sæti í 16 liða úrslitunum og sigur í A-riðlinum með 3-1 sigri á Villarreal. Arjen Robben og Mario Gomez komu þýska liðinu í 2-0 á fyrstu 24 mínútunum og Franck Ribery innsiglaði síðan sigurinn eftir að spænska liðið hafði minnkað muninn.

Napoli er komið í góða stöðu eftir 2-1 sigur á Manchester City en liðið er nú með stigi meira en enska liðið og nægir sigur á botnliði Villarreal í lokaumferðinni til þess að komast áfram.

Benifca náði 2-2 jafntefli á móti Manchester United á Old Trafford og tryggði sér með því sæti í sextán liða úrslitunum. Benfica er með jafnmörg stig og United og einu stigi meira en Basel. Benfica getur ekki endaði neðan er í 2. sæti þar sem að liðið er með betri innbyrðisstöðu á móti báðum liðum. Basel og Manchester United mætast í Sviss í hreinum úrslitaleik um hitt sætið en United nægir þar jafntefli.

Inter Milan var komið áfram fyrir 1-1 jafntefli sitt á móti Trabzonspor í Tyrklandi þar sem að Lille vann 2-0 sigur á CSKA í Moskvu.

Real Madrid var komið áfram en hélt áfram frábæru gengi sínu í Meistaradeildinni með því að vinna 6-2 stórsigur á Dinamo Zagreb. Real-iðið setti nýtt met í Meistaradeildinni með því að skora fjögur mörk á fyrstu 20 mínútum leiksins.

Ajax náði markalausu jafntefli á móti Lyon í Frakklandi og er komið með níu tær í sextán liða úrslitin. Ajax er með þremur stigum meira en Lyon en liðin eru jöfn innbyrðis eftir tvö markalaus jafntefli.

Lykilstaða Ajax er fólgin í því að hollenska liðið hefur sjö marka forskot á Lyon í markatölu úr öllum leikjum liðanna í riðlinum. Það þarf því mikið að gerast í lokaumferðinni til þess að Frakkarnir taki sætið af Kolbeini Sigþórssyni og félögum.

Úrslit og markaskorarar í Meistaradeildinni í kvöld:

A-riðill

Napoli - Manchester City 2-1

1-0 Edison Cavani (17.), 1-1 Mario Balotelli (33.), 2-1 Edinson Cavani (49.)

Bayern München - Villarreal 3-1

1-0 Arjen Robben (3.), 2-0 Mario Gomez (24.), 2-1 Jonathan De Guzman (50.), 3-1 Franck Ribery (69.)

B-riðill

CSKA Moskva - Lille 0-2

0-1 Sjálfsmark (49.), 0-2 Moussa Sow (64.)

Trabzonspor - Inter 1-1

0-1 Ricardo Alvarez (18.), 1-1 Halil Altintop (23.)

C-riðill

Manchester United - Benfica 2-2

0-1 Sjálfsmark (3.), 1-1 Dimitar Berbatov (30.), 2-1 Darren Fletcher (59.), 2-2 Pablo Aimar (60.)

Otelul Galati - Basel 2-3

0-1 Fabian Frei (10.), 0-2 Alexander Frei (14.), 0-3 Marco Streller (37.), 1-3 Gabriel Nicu Giurgiu (75.), 2-3 Liviu Antal (81.)

D-riðill

Lyon - Ajax 0-0

Real Madrid - Dinamo Zagreb 6-2

1-0 Karim Benzema (2.), 2-0 José Callejón (6.), 3-0 Gonzalo Higuaín (9.), 4-0 Mesut Özil (20.), 5-0 José Callejón (49.), 6-0 Karim Benzema (66.), 6-1 Beqiraj (81.), 6-2 Ivan Tomecak (90.).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×